17.07.10 - 14:39
Alexander Freyr Tamimi
Adriano gengur til liðs við Barcelona (Staðfest)

Adriano ásamt Renato, fyrrum samherja sínum hjá Sevilla.

Mynd: Getty Images

Adriano ásamt Renato, fyrrum samherja sínum hjá Sevilla.

Mynd: Getty Images
Spánarmeistarar Barcelona hafa gengið frá kaupunum á bakverðinum Adriano sem kemur til liðsins frá Sevilla. Skrifaði Brasilíumaðurinn undir fjögurra ára samning við Katelóníustórveldið.
Flutningur Adriano til Börsunga hafði verið í spilunum í talsverðan tíma en í dag skrifaði þessi 25 ára leikmaður undir samninginn sem er með möguleika um eins árs framlengingu ef hann stendur sig vel.
Barcelona greindi frá því að félagið hafi borgað 7,6 milljónir punda fyrir leikmanninn en verðið gæti hækkað í 11,4 milljónir. Adriano, sem hefur spilað átta leiki fyrir landslið Brasilíu, lék með Sevilla í fimm ár.

Heimild: Sky