17.07.10 - 16:18
Alexander Freyr Tamimi
Mario Mandzukic til Wolfsburg (Staðfest)

Mandzukic er hluti af áformum Wolfsburg til að endurupplifa stundina á þessari mynd, þegar þeir unnu Bundesliguna.

Mynd: Getty Images

Þýska úrvalsdeildarliðið Wolfsburg hefur gengið frá kaupunum á króatíska framherjanum Mario Mandzukic og skrifaði hann undir fjögurra ára samning við Þýskalandsmeistarana frá árinu 2009.
Steve McClaren, nýr knattspyrnustjóri liðsins, borgaði átta milljónir evra fyrir leikmanninn en Aston Villa var einnig sagt hafa áhuga. Mandzukic kemur til Wolfsburg frá Dinamo Zagreb og hlakkar hann til að spreyta sig í þýska boltanum.
„Ósk mín var að spila í þýsku úrvalsdeildinni. Nú er ég kominn til mjög góðs félags og ég vona að væntingar mínar hafi átt rétt á sér,\" sagði Mandzukic eftir að hafa skrifað undir.
Þessi 24 ára Króati er þriðji leikmaðurinn sem McClaren fær til liðsins síðan hann tók við í sumar, en hinir tveir eru þýski landsliðsmaðurinn Arne Friedrich og Daninn Simon Kjær.
Markmið félagsins er skýrt, að endurheimta þýska meistaratitilinn sem þeir misstu til Bayern Munchen á afstöðnu tímabili.

Heimild: Sky