Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 17. ágúst 2022 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bestur í 3. deild: Til hamingju með þetta Laddi
Þórhallur Ísak Guðmundsson (ÍH)
ÍH vann geggjaðan sigur gegn KFG.
ÍH vann geggjaðan sigur gegn KFG.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Þórhallur Ísak Guðmundsson, markvörður ÍH, er leikmaður 16. umfeðar í 3. deild - í boði Jako Sport - að mati Ástríðunnar.

Þórhallur, sem er uppalinn FH-ingur, átti stórgóðan leik þegar ÍH vann glæstan 1-0 sigur gegn KFG í Hafnarfirði síðastliðið föstudagskvöld.

„Hann steig ekki eitt feilspor í þessu hreina laki á móti KFG," sagði Sverrir Mar Smárason í Ástríðunni.

„Ég hefði getað valið Tómas Atla Björgvinsson sömuleiðis sem tók Kára Pétursson í bakaríið í þessum leik. Hann hleypti honum aldrei fram hjá sér."

„Þórhallur Ísak er leikmaður umferðarinnar í boði Jako Sport, til hamingju með þetta Laddi."

Hægt er að hlusta á Ástríðuna í spilaranum neðst í fréttinni eða í öllum hlaðvarpsveitum

Fyrri leikmenn umferðarinnar:
1. umferð - Matthew Woo Ling (Dalvík/Reynir)
2. umferð - Ante Marcic (Kormákur/Hvöt)
3. umferð - Arnar Laufdal Arnarsson (Augnablik)
4. umferð - Jóhann Þór Arnarsson (Víðir)
5. umferð - Robertas Freidgeimas (Sindri)
6. umferð - Arnar Sigþórsson (ÍH)
7. umferð - Arnar Sigþórsson (ÍH)
8. umferð - Ingvi Rafn Ingvarsson (Kormákur/Hvöt)
9. umferð - Nökkvi Egilsson (Augnablik)
10. umferð - Hermann Þór Ragnarsson (Sindri)
11. umferð - Ásgeir Elíasson (KFS)
12. umferð - Jóhann Örn Sigurjónsson (Dalvík/Reynir)
13. umferð - Jóhann Þór Arnarsson (Víðir)
14. umferð - Eysteinn Þorri Björgvinsson (Augnablik)
15. umferð - Kári Pétursson (KFG)
Athugasemdir
banner
banner
banner