17.10.11 - 16:04
Hafliði Breiðfjörð
Óli Jó og Sigurbjörn Hreiðarsson taka við Haukum (Staðfest)

Ólafur Jóhannesson er nýr þjálfari Hauka. Hér skrifar hann undir þriggja ára samning í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Ólafur Jóhannesson fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands hefur verið ráðinn þjálfari 1. deildar liðs Hauka og Sigurbjörn Hreiðarsson verður spilandi aðstoðarmaður hans. Þetta var tilkynnt á fréttamannafundi á Ásvöllum rétt í þessu. Hann tekur við starfinu af Magnúsi Gylfasyni sem hætti til að taka við ÍBV.
Ólafur þekkir til hjá Haukum þar sem hann hóf feril sinn sem leikmaður, og lék á sínum tíma 11 leiki í efstu deild og skoraði í þeim tvö mörk árið 1979. Það má því segja að hann sé að snúa aftur heim eftir langa fjarveru.
Hann hefur náð miklum árangri sem þjálfari og hefur nokkrum sinnum tekið við erkiféndum Hauka í FH. Hann gerði lið FH að Íslandsmeisturum 2004, 2005 og 2006 og bikarmeisturum árið 2007 en tók svo við íslenska landsliðinu.
Ólafur gerði þriggja ára samning við Hauka rétt í þessu og einnig var staðfest að Sigurbjörn Hreiðarsson verður aðstoðarmaður hans.
Sigurbjörn hefur allan sinn feril leikið með Val en ákvað nú í lok ferils að söðla um og fór í félag sem er nátengt Val því Séra Friðrik stofnaði bæði Val og Hauka á sínum tíma.