Fotbolti.net
17.10.11 - 18:00
Magnús Már Einarsson

James McFadden til Everton (Staðfest)

James McFadden til Everton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

James McFadden hefur gengið til liðs við Everton en hann gerði samning við félagið út tímabilið.
Þessi skoski kantmaður hefur verið án félags síðan hann yfirgaf Birmingham í sumar.

Wolves og Celtic höfðu áhuga á McFadden en á endanum ákvað hann að semja við Everton.

McFadden, sem er 28 ára, þekkir vel til hjá Everton því hann lék 130 leiki með liðinu á sínum tíma.

McFadden var hjá Everton frá 2003 til 2007 áður en hann fór til Birmingham.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.