17.11.11 - 08:00
Magnús Már Einarsson
Brynjar í Val og Guðmundur Steinn í Víking Ó. (Staðfest)

Guðmundur Steinn Hafsteinsson.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Víkingur Ólafsvík og Valur hafa komist að samkomulagi um skipti á leikmönnunum Brynjari Kristmundssyni og Guðmundi Stein Hafsteinssyni.
Brynjar, sem er 19 ára bakvörður, gekk á dögunum frá þriggja ára samningi við Hlíðarendafélagið.
Undanfarin ár hefur Brynjar verið í lykilhlutverki hjá Víkingi en hann gekk til liðs við Val á láni í júlí og spilaði sjö leiki í Pepsi-deildinni.
Guðmundur Steinn Hafsteinsson hefur gert tveggja ára samning við Víking en hann spilaði 21 leik og skoraði 7 mörk þegar hann var í láni hjá Ólafsvíkingum á liðnu keppnistímabili.
Guðmundur, sem er 22 ára framherji, er uppalinn Valsari en hann var einnig á láni hjá HK í fyrra.

Heimild: Heimasíða Víkings Ó.