Fotbolti.net
17.11.11 - 09:45
Magnús Már Einarsson

Van Gaal fer til Ajax næsta sumar (Staðfest)

Van Gaal fer til Ajax næsta sumar (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Louis van Gaal mun taka við sem framkvæmdastjóri hjá Ajax 1. júlí næstkomandi.

Van Gaal var rekinn frá FC Bayern á síðasta tímabili en hann er þó ennþá samningsbundinn þar.
Um leið og samningur Van Gaal hjá Bayern rennur út næsta sumar mun hann fara til Ajax.

Van Gaal þjálfaði Ajax frá 1991-1997 við góðan orðstír og hann var tæknilegur ráðgjafi hjá félaginu 2003-2004.

Hann mun nú prófa að vera framkvæmdastjóri en talið er líklegt að Danny Blind, fyrrum leikmaður Ajax, verði tæknilegur ráðgjafi við hlið hans.

Heimild: Goal

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.