17.11.11 - 19:45
Magnús Már Einarsson
Abdullah Avci ráðinn landsliðsþjálfari Tyrkja (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Abdullah Avci hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Tyrkja en hann tekur við af Guus Hiddink.
Tyrkir töpuðu gegn Króötum í umspili um sæti á EM og í kjölfarið hætti Hiddink.
Tyrkir töpuðu gegn Króötum í umspili um sæti á EM og í kjölfarið hætti Hiddink.
,,Abdullah verðskuldar þetta starf, ég tel að hann eigi eftir að gera góða hluti með landsliðið,\" sagði Mehmet Ali Aydinar formaður tyrkneska knattspyrnusambandsins.
Hinn 48 ára gamli Abdullah hefur undanfarin fimm ár stýrt liði Buyuksehir frá Istanbul.
Abullah stýrði áður yngri landsliðum Tyrkja og árið 1995 varð U17 ára landsliðið í fjórða sæti á HM undir hans stjórn.

Heimild: Reuters