banner
   þri 17. nóvember 2020 16:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Auðvelt að klífa fjallið þegar þú sérð toppinn en ef hann birtist aldrei ertu fljótur að þreytast"
Úr bikarúrslitaleiknum gegn Breiðabliki árið 2018. Síðan hefur Ævar leikið átta mótsleiki.
Úr bikarúrslitaleiknum gegn Breiðabliki árið 2018. Síðan hefur Ævar leikið átta mótsleiki.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er auðvelt að klífa fjallið þegar þú sérð toppinn en ef hann birtist aldrei ertu fljótur að þreytast.
Það er auðvelt að klífa fjallið þegar þú sérð toppinn en ef hann birtist aldrei ertu fljótur að þreytast.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Já við vorum mjög meðvitaðir um það að við þyrftum að skora.
Já við vorum mjög meðvitaðir um það að við þyrftum að skora.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ég var orðinn mjög þungur á þessum tíma og líklega ekkert rosa skemmtilegur að vera í kringum.
Ég var orðinn mjög þungur á þessum tíma og líklega ekkert rosa skemmtilegur að vera í kringum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ef ég hefði ekki verið með frábært fólk í kringum mig og þá sérstaklega ákveðna leikmenn innan hópsins, þar á meðal Eyjólf Héðins sem þekkir meiðsli betur en flestir, held ég að ég hefði verið búinn að segja þetta gott.
Ef ég hefði ekki verið með frábært fólk í kringum mig og þá sérstaklega ákveðna leikmenn innan hópsins, þar á meðal Eyjólf Héðins sem þekkir meiðsli betur en flestir, held ég að ég hefði verið búinn að segja þetta gott.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ævar var lykilmaður í U21 árs landsliðinu og lék A-landsleik árið 2016.
Ævar var lykilmaður í U21 árs landsliðinu og lék A-landsleik árið 2016.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ég átta mig á því að það eru til alvarlegri hlutir en meiðsli í fótbolta, en fyrir suma er þetta allt sem þau eiga. Draumurinn er að verða atvinnumaður í fótbolta og það er eina markmiðið.
Ég átta mig á því að það eru til alvarlegri hlutir en meiðsli í fótbolta, en fyrir suma er þetta allt sem þau eiga. Draumurinn er að verða atvinnumaður í fótbolta og það er eina markmiðið.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Sérstaklega el capitano Alex Þór Hauksson, hann er sjálfur algjör stærðfræðiheili
Sérstaklega el capitano Alex Þór Hauksson, hann er sjálfur algjör stærðfræðiheili
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta hefur reynt alveg svakalega á mig andlega. Vonbrigðin að geta ekki hjálpað liðinu inn á vellinum eru hrikaleg. Það að líða alltaf eins og þú sért að bregðast félaginu, liðsfélögum, þjálfurum og fólkinu í kringum félagið sem styður þig endalaust áfram er hrikalega erfitt."

Árið er 2016 og janúar er senn á enda. Ævar Ingi Jóhannesson er að koma inn á í sínum fyrsta landsleik og spilar lokamínúturnar gegn Bandaríkjunum á heimavelli LA Galaxy. Ævar var þá í stóru hlutverki í U21 árs landsliðinu og skoraði sumarið á undan níu mörk í nítján leikjum með uppeldisfélagi sínu KA þegar liðið endaði í 3. sæti 1. deildar.

Um veturinn skipti hann yfir í Stjörnuna og lék 21 leik þegar Stjarnan endaði í 2. sæti Pepsi-deildarinnar, ferillinn á góðum stað og áhorfendur bjuggust jafnvel við að Ævar færi erlendis í atvinnumennsku. Eftir tímabilið 2016 hefur Ævar hins vegar misst úr marga leiki og einungis tekið þátt í 28 af 88 deildarleikjum Stjörnunnar sökum meiðsla. Hann lék þó fjórtán deildarleiki sumarið 2018 og var hluti af bikarmeistaraliði Stjörnunnar.

Ævar kom inn á í leiknum sem reyndist vera lokaleikur tímabilsins hjá Stjörnunni nú í haust. Það var hans eini leikur á tímabilinu. Stjarnan vann 1-0 sigur á Fjölni og kom sigurmarkið á þeim mínútum sem hinn 25 ára gamli Ævar lék. Mínúturnar voru ellefu þetta sumarið.

„Það er nú bara eðlilegt að þú spyrjir um meiðslin, ekki getur þú spurt mig mikið út í frammistöðuna á vellinum þetta tímabilið, og jafnvel tímabilið þar á undan ef út í það er farið," sagði Ævar þegar fréttaritari hafði samband.

Þorkell Máni Pétursson kom inn á meiðsli Ævars í Pepsi Max stúkunni í október og sagði að meiðsli Ævars hefðu verið greind vitlaust í lengri tíma. Skömmu áður hafði Ævar verið í viðtali hér á Fótbolti.net vegna ökklameiðsla. „Þetta hefur því miður verið sagan síðustu ár en vonandi fer þetta allt að snúast við svo maður geti farið að spila fótbolta af einhverju viti aftur og þá hjálpað liðinu í baráttunni um Evrópusæti," sagði Ævar fyrir leikinn gegn Fjölni.

Kom í ljós að Ævar var kviðslitinn
Ævar fékk eftirfarandi spurningar sem tengdust ummælum Mána: 1) tengist þetta eitthvað þessum ökklameiðslum? 2) Ef ekki, hvers kyns meiðsli eru þetta og hvernig er útlitið núna?

„Þessi ökklameiðsli voru nú bara smotterí, högg sem ég lenti í á æfingu og hélt mér bara frá í smá tíma. En það hafa í raun verið nokkur meiðsli sem hafa haldið mér frá keppni síðustu árin. Í fyrsta lagi er það tækling sem á sér stað í Lengjubikarnum 2018 þar sem það brotnar biti í ökklanum á mér og ég þurfti að fara í aðgerð í kjölfarið. Það hefur verið að trufla mig svona af og til. Síðan eru það mjaðmirnar og nárinn á mér sem hafa verið að trufla mig síðustu ár."

„Þar er ég alltaf að stífna upp og togna eða fæ tak í nárann aftur og aftur. Við áttum erfitt með að finna út hvað það var sem væri að angra mig og ég var með nokkra mjög færa sjúkraþjálfara með mér í því að finna út hvað væri í gangi. Núna í byrjun sumars gat ég ekki æft og við vorum ekki alveg að átta okkur á þessu. Svo kom í ljós í myndatöku í byrjun sumars að ég væri kviðslitinn og hef líklegast verið það lengi og ég fór í aðgerð til þess að laga það."


Erfitt að greina svæðið - Ekki enn 100%
Ævar segir að þrátt fyrir aðgerðina fyrr í sumar finni hann enn fyrir svipuðum verkjum.

„Þrátt fyrir aðgerðina get ég ekki sagt að nárinn á mér sé orðinn 100% og ég finn ennþá svipaða verki og ég fékk áður. Tíminn verður bara að leiða í ljós hvernig það fer og hvort þetta hafi virkað. En ástæðan fyrir því að þetta var ekki fundið fyrr er sú að þetta svæði er talið mjög erfitt í að greina, það geta verið svo ótrúlega margir hlutir sem eru að orsaka þennan verk."

„Þetta hefur reynt alveg svakalega á mig andlega"
Hefur Ævar einhvern tímann hugsað um að komið sé nóg af meiðslabarátunni og íhugað að leggja skóna á hilluna? Svar Ævars við þeirri spurningu var ítarlegt.

„Ég ætla ekki að reyna að vera einhver hetja og segja að sú hugsun hafi aldrei komið upp í hugann á mér. Þetta hefur reynt alveg svakalega á mig andlega. Vonbrigðin að geta ekki hjálpað liðinu inn á vellinum eru hrikaleg. Það að líða alltaf eins og þú sért að bregðast félaginu, liðsfélögum, þjálfurum og fólkinu í kringum félagið sem styður þig endalaust áfram er hrikalega erfitt. Þú færð einhvern veginn aldrei að sýna þitt rétta andlit og það tekur á. Aðrir leikmenn sem hafa lent í svipuðu hafa talað um þessa tilfinningu og vita hvað ég er að tala um. Svo hefur líka verið svo mikil óvissa í kringum meiðslin, og hvað nákvæmlega er að angra mig. Það er auðvelt að klífa fjallið þegar þú sérð toppinn en ef hann birtist aldrei ertu fljótur að þreytast," sagði Ævar við Fótbolta.net fyrir helgi.

Ef ekki fyrir frábæra liðsfélaga væri Ævar líklega hættur - Varð mjög þungur andlega
Það er ljóst að þessi þrálátu meiðsli hafa tekið sinn toll. Ævar þakkar fyrir að hafa frábært fólk í kringum sig.

„Ef ég hefði ekki verið með frábært fólk í kringum mig og þá sérstaklega ákveðna leikmenn innan hópsins, þar á meðal Eyjólf Héðins sem þekkir meiðsli betur en flestir, held ég að ég hefði verið búinn að segja þetta gott."

Ævar hvetur ungt knattspyrnufólk til að sækja sér hjálp með andlega þáttinn sem fyrst ef það lendir í erfiðum meiðslum. Hann segir að hann hafi ekki áttað sig á því hversu mikil áhrif þetta hefði á sig utan fótboltans.

„Svo stend ég fast á þeirri skoðun að ungt knattspyrnufólk sem lendir í erfiðum meiðslum eigi að leita sér hjálpar sem fyrst með andlega þáttinn. Ég persónulega var alltof lengi að gera það og það bitnaði því miður smá á fólki í kringum mig. Ég áttaði mig mögulega ekki á því hversu mikil áhrif þetta væri að hafa á mig fyrir utan fótboltann fyrr en alltof seint og því var ég lengi að “gera eitthvað” í þessu. Þetta væri bara eitthvað smotterí og ég gæti bara harkað mig í gegnum þetta. Ég var orðinn mjög þungur á þessum tíma og líklega ekkert rosa skemmtilegur að vera í kringum."

Til alvarlegri hlutir en meiðsli í fótbolta
Ævar segir að hjálpin sem hann fékk hafi fengið hann til að sjá hlutina í öðru ljósi. Hann segir þá að það sé mikilvægt að ungt fólk sem lendir í áföllum viti hvert það eigi að sækja sér aðstoð.

„Eftir að ég fékk hjálp við að díla við þetta, sjá hlutina í öðru ljósi og njóta þess að fá að vera partur af þessu frábæra liði og þessum frábæra félagi sem Stjarnan er þá byrjaði mér að líða betur aftur. En þetta er langt ferli og ég er ennþá að vinna í því í dag."

„Það er nauðsynlegt að það verði til öflugt umhverfi fyrir ungt knattspyrnufólk á Íslandi til þess að bæta andlega þáttinn. Hvort sem það sé fyrir stráka eða stelpur sem lenda í erfiðum meiðslum, unga iðkendur sem eru að upplifa lélegt sjálfstraust eða vilja bæta einbeitinguna sína."

„Ég átta mig á því að það eru til alvarlegri hlutir en meiðsli í fótbolta, en fyrir suma er þetta allt sem þau eiga. Draumurinn er að verða atvinnumaður í fótbolta og það er eina markmiðið. Ungt fólk sem lendir svo í áföllum eins og meiðsli geta verið og er ekki með bakland eða rétta umhverfið í kringum sig getur lent í miklu þunglyndi og vanlíðan. Þess vegna er mikilvægt að einstaklingarnir viti hvert sé hægt að leita. Mér finnst þetta hafa batnað mjög mikið og undanfarin ár hafa verið miklar framfarir í þessu innan knattspyrnu hreyfingunnar á Íslandi og ég vona innilega að það verði sett enn meira púður í þetta. Það er mikið svigrúm til þess að bæta þetta og í staðinn munum við fá betra fótboltafólk og almennt bara heilsteyptari manneskjur í fótboltasamfélagið."


Meðvitaðir um að þetta gæti verið síðasti leikurinn
Eins og fram kom hér á undan kom Ævar inn á í lokaleiknum gegn Fjölni. Skömmu eftir innkomuna skoraði Hilmar Árni Halldórsson markið sem tryggði Stjörnunni á endanum Evrópusæti. Stjarnan hefði reyndar þurft að tapa þeim leik til að missa af því sæti þegar uppi var staðið því KR gerði jafntefli við HK á sama tíma. Voru Stjörnumenn að hugsa á þessum tíma að þetta mark gæti skipt miklu máli?

„Já, við vorum mjög meðvitaðir um það að við þyrftum að skora. Óli og Rúnar voru mjög duglegir að segja við okkur í sumar að þetta gæti verið síðasti leikurinn og að hvert einasta stig skipti máli. Það sem Óli sagði við mig þegar ég var að fara inn á var bara 'við verðum að skora' og það skipti ekkert annað máli. Svo já, okkur datt alveg í hug að þetta gæti orðið mjög mikilvægt þó svo að maður hélt ekki að þetta yrði okkar seinasti leikur," sagði Ævar um innkomuna gegn Fjölni.

Gaman af því að búa til stærðfræðilíkön
Við vinnslu fréttar fékk fréttaritari ábendingu um að Ævar væri mikill stærðfræðiheili. Ævar var spurður út í það undir lokin.

„Hvaða snillingar sögðu þér það?" spurði Ævar og hló.

„En jú ég tók stærðfræði í háskóla með áherslu á tölfræði og gagnagreiningu. Ég er svo að vinna á frábærum vinnustað núna, Arion banka, í starfi tengdu náminu mínu. Þar hef ég mjög gaman af því að reikna og búa til stærðfræðilíkön."

„Strákarnir í klefanum elska svo líka að heyra mig tala um stærðfræði og hafa mikinn áhuga á því. Sérstaklega el capitano Alex Þór Hauksson, hann er sjálfur algjör stærðfræðiheili,"
sagði Ævar að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner