18.01.12 - 06:00
Elvar Geir Magnússon
Jaroslaw Fojut til Glasgow Celtic (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Glasgow Celtic hefur tryggt sér Jaroslaw Fojut frá toppliðinu í Póllandi, Slask Wroclaw. Samningurinn tekur gildi næsta sumar.
Celtic trónir á toppnum í Skotlandi en þessi 24 ára varnarmaður var fjögur ár í herbúðum Bolton, 2004-2009, en lék aðeins einn leik.

„Hann hefur verið áður í Bretlandi svo ég held að hann verði fljótur að aðlagast,\" segir knattspyrnustjórinn Neil Lennon.
„Hann er sterkur, með fína tækni, snöggur og mjög sterkur í loftinu. Hann var frá keppni og æfingar í um eitt ár vegna meiðsla. Ég er ánægður með þessi kaup.\"