Fotbolti.net
18.01.12 - 11:19
Hafliði Breiðfjörð

Hallbera Guðný Gísladóttir til Piteå (Staðfest)

Hallbera Guðný í leik með Val í sumar.

Hallbera Guðný í leik með Val í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Kvennaboltinn
Hallbera Guðný Gísladóttir landsliðskona Íslands er gengin til liðs við sænska félagið Piteå frá Val og hefur gert eins árs samning við félagið.
Eins og Hallbera sagði við Fótbolta.net fyrr í vetur var ljóst að hún færi í sænsku deildina en KIF Örebro og LdB Malmö höfðu einnig sýnt henni áhuga. Hún valdi hinsvegar Piteå og samdi við félagið í dag.

,,Ég hef unnið íslensku deildina fimm sinnum á síðustu sex árum. Núna þarf ég nýja áskorun og kvennadeild Allsvenska er frábært skref fyrir mig til að bæta mig sem leikmann,\" sagði Hallbera á Damfotboll.

,,Ég hefu heyrt mikið um Piteå frá íslenskum leikmönnum sem spila í Svíþjóð. Ég hlakka mikið til að komast til Piteå. Það er margt áhugavert við liðið og hópurinn lítur spennandi út þetta árið.\"

Hallbera er 26 árs gömul og hóf meistaraflokk feril sinn með ÍA árið 2002. Hún gekk til liðs við Val árið 2006 og hefur spilað 156 meistaraflokksleiki og skorað í þeim 48 mörk. Hún á að baki 23 leiki fyrir A-landslið Íslands.

Heimild: Damfotboll

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.