Fotbolti.net
18.01.24 - 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sevilla fær Mejia frá Man Utd (Staðfest) - Árangurstengdar greiðslur

Sevilla fær Mejia frá Man Utd (Staðfest) - Árangurstengdar greiðslur
Canon

Mynd: Man Utd

Sevilla hefur fengið framherjann Mateo Mejia í sínar raðir frá Manchester United. Mejia er tvítugur og hefur verið í fjögur og hálft ár í akademíu Manchester United. Hann kom til enska félagsins frá Real Zaragoza árið 2019.

Hann er fæddur í Zaragoza en getur einnig spilað með kólumbíska landsliðinu þar sem foreldrar hans eru þaðan. Hann lék sinn fyrsta leik fyrir U20 landslið Kólumbíu í desember 2022.
Mejia æfði með aðalliði United síðasta sumar og lék í æfingaleik gegn Wrexham. Þann leik léku aðallega yngri leikmenn og svo Johnny Evans sem var að snúa aftur til United.

Hjá Sevilla hittir hann fyrir Hannibal Mejbri sem var lánaður frá United fyrr í þessari viku. Mejia hefur spilað fyrir U21 árs lið United og þar gerði hann fimm mörk í 30 leikjum.

Samningur Mejia við United átti að renna út í sumar.

United fær enga greiðslu frá Sevilla fyrir leikmanninn en fær greiðslu ef hann spilar ákveðið marga leiki hjá Sevilla og stendur sig vel. United fær einnig prósentu af næstu sölu.

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona12+3533
2Real Madrid12+2130
3Atletico Madrid12+1328
4Betis12+526
5Real Sociedad12+122
6Sevilla12-218
7Athletic11+416
8Villarreal12+215
9Deportivo12+115
10Racing Santander12-1314
11Celta12013
12Alaves12-213
13Espanyol12-112
14Vallecano11-612
15Getafe12-1012
16Osasuna12-1112
17Levante12-511
18Elche12-610
19Valencia12-129
20Malaga12-145
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.