Belgi orðaður við Man Utd - Óskalisti Alonso ef hann tekur við Liverpool - Juventus veitir Arsenal samkeppni um Goretzka
banner
   mið 18. mars 2026 09:07
Elvar Geir Magnússon
„Rosenior hefði átt að vera rekinn í hálfleik“
Liam Rosenior, stjóri Chelsea.
Liam Rosenior, stjóri Chelsea.
Mynd: EPA
Chelsea tapaði 0-3 fyrir Paris Saint-Germain í Meistaradeildinni í gær og einvíginu samtals 2-8.

Þessi skellur gegn ríkjandi Evrópumeisturum ætti að marka leiðarlok hjá Liam Rosenior, stjóra Chelsea, að mati Rory Jennings hjá TalkSport.

„Ef við værum ennþá félag með standard þá hefði þessi brandari af stjóra verið rekinn í hálfleik," skrifaði Jennings á X en hann er stuðningsmaður Chelsea.

Jennings hafði áður gagnrýnt Rosenior eftir tap liðsins gegn Newcastle í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi.

Eftir lofandi byrjun Rosenior, sem tók við þegar Enzo Maresca lét af störfum, hefur hallað undan fæti hjá Chelsea. Liðið er aðeins þriðja enska liðið sem fær á sig átta mörk í Evrópueinvígi og stuðningsmenn bauluðu á Stamford Bridge í gær.

PSG er hinsvegar komið í 8-liða úrslit og mætir Liverpool eða Galatasaray.


Athugasemdir
banner
banner
banner