Norska félagið Brann greinir frá því að Sævar Atli Magnússon sé kominn til Íslands til að fara í aðra aðgerð og verði ekki leikfær með Brann fyrr en eftir HM í sumar.
Sævar reif liðþófa í hné í landsleik gegn Frakklandi í október og gekkst undir aðgerð þar sem hann varð fyrir sýkingu og þurfti að fara í tvær aðgerðir til viðbótar.
Hann hefur gengist í gegnum langt endurhæfingarferli og hefur nú orðið fyrir öðru bakslagi.

Per-Ove Ludvigsen íþróttastjóri Brann segir að þessar fréttir séu þungt högg, bæði fyrir leikmanninn og félagið.
„Þetta er leiðinlegt fyrir Sævar og leiðinlegt fyrir okkur. Hann er leikmaður sem hefur lagt ótrúlega mikið á sig til að koma til baka og það gerir þetta enn meira svekkjandi. Við vonum að aðgerðin heppnist vel núna og að hann komi sterkur til baka eftir sumarfríið," segir Ludvigsen.
Sævar gekk til liðs við Brann frá Lyngby sumarið 2025 og lék gríðarlega vel áður en hann meiddist í landsleiknum og er í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum Brann.
Noregur er með á HM og norska deildin fer í hlé meðan á keppninni stendur. Fyrsti leikur Brann eftir HM er skráður 5. júlí, gegn Lilleström.
Athugasemdir