Fotbolti.net
18.06.10 - 07:19
Magnús Már Einarsson

Belgískur markvörður til Sunderland (Staðfest)

Steve Bruce stjóri Sunderland.

Steve Bruce stjóri Sunderland.

Canon

Mynd: Getty Images

Sunderland hefur keypt markvörðinn Simon Mignolet frá Sint Truidense fyrir óuppgefna upphæð.
Þessi 22 ára gamli leikmaður hefur skrifað undir fimm ára samning við Sunderland.

Marton Fulop er líklega á förum frá Sunderland og því kemur það í hlut Mignolet að berjast við Craig Gordon um markvarðarstöðuna hjá liðinu.

,,Hann kemur tilbúinn í undirbúningstímabilið og ég held að hann muni þrýsta á að fá sæti í liðinu,\" sagði Steve Bruce stjóri Sunderland.

Mignolet er annar leikmaðurinn sem Sunderland fær til sín í sumar en áður hafði félagið krækt í paragvæska miðjumanninn Cristian Riveros.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.