Fotbolti.net
18.06.10 - 15:07
Magnús Már Einarsson

Steven Mouyokolo til Wolves (Staðfest)

Steven Mouyokolo til Wolves (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Wolves hefur keypt varnarmanninn Steven Mouyokolo frá Hull City en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
Þessi 23 ára gamli Frakki kom til Hull frá Boulogne fyrir ári síðan og lék 23 leiki í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

Hann náði ekki að hjálpa Hull að forðast fall en þrátt fyrir það vakti frammistaða hans athygli hjá Wolves sem hefur nú keypt leikmanninn.

Mouyokolo er þriðji leikmaðurinn sem Úlfarnir kaupa í sumar en áður höfðu Jelle van Damme og Steven Fletcher komið til félagsins.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.