18.06.10 - 15:48
Þórður Már Sigfússon
Sölvi Geir til FC København (Staðfest)

Mynd: Rico Bjerre Soos

Mynd: Rico Bjerre Soos
Landsliðsmiðvörðurinn Sölvi Geir Ottesen er genginn til liðs við danska meistaraliðið FC København frá SønderjyskE. Frá þessu er greint á heimasíðum liðanna.
Sölvi skrifaði undir þriggja ára samning við FC København en eins og Fótbolti.net greindi frá fyrr í dag er kaupverðið rúmar 150 milljónir íslenskra króna.
Samkvæmt Klaus Rasmussen, framkvæmdastjóra SønderjyskE, er þetta stærsta einstaka sala á leikmanni frá upphafi í sögu félagsins en Sölvi hefur þótt einn besti varnarmaður dönsku úrvalsdeildarinnar undanfarin tvö ár.
Forráðamenn FC København eru mjög ánægðir með kaupin á Sölva Geir og er haft eftir Carsten V. Jensen, yfirmanni íþróttamála hjá félaginu, að það gleðji hann mikið að þurfa ekki lengur að hafa áhyggjur af Íslendinginum sem mótherja.
Sjálfur er Sölvi mjög sáttur með félagaskiptin til Kaupmannahafnarliðsins.
,,Ég kem til Kaupmannahafnar með mikinn metnað um að hjálpa klúbbnum til að vinna fleirri meistaratitla,\" sagði Sölvi eftir undirskriftina á heimasíðu FC København.

Heimild: Heimasíða SönderjyskE | Heimasíða FC København