18.07.10 - 11:41
Hafliði Breiðfjörð
Edinson Cavani til Napoli (Staðfest)

Cavani fagnar marki á Heimsmeistaramótinu í Suður Afríku með Úrúgvæ.

Mynd: Getty Images

Aurelio De Laurentiis forseti Napoli á Ítalíu hefur staðfest að félagið hafi gengið frá kaupum á Edinson Cavani sem kemur frá Palermo.
Cavani sem er framherji landsliðs Úrúgvæ skrifaði undir fimm ára samning við Napoli en félagið greiðir fyrst fimm milljónir evra fyrir leikmanninn og 12 milljónir verða svo greiddar á fjögurra ára tímabili.
Muarizio Zamparini forseti Palermo hafði í síðasta mánuði sagt að Tottenham hafi boðið í leikmanninn en enska félagið sagði það ekki rétt.
,,Cavani er leikmaður Napoli,\" sagði De Laurentiis við Radio Marte. ,,Önnur félög vildu hann en við fengum hann. Við höfum verið á eftir Cavani í rúman mánuð. Ég var þegar í viðræðum við Zamparini og ég get sagt að þetta var ekki auðveldur samningur því það voru önnur stór félög sem vildu hann.\"
,,En við vorum fyrstir til að loka því eftir að hafa komið okkur snemma að borðinu. Viðræður um Zamparini hófust fyrir Heimsmeistaramótið, ég hef lesið svo marga ranga hluti. Það voru aldrei vandamál vegna launa hans og ímyndarréttinda. Við höfum um nokkra stund haft samkomulag við Palermo og umboðsmann hans.\"
Cavani skoraði 13 mörk í 34 leikjum á síðustu leiktíð. Hann þótti standa sig vel á HM í sumar en Úrúgvæ endaði í fjórða sæti á mótinu.

Heimild: Sporting Life