Fotbolti.net
18.07.23 - 11:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Bónorð á æfingu hjá Víði Garði

Bónorð á æfingu hjá Víði Garði
Canon

Mynd: Joaquin Ketlun

Það átti sér stað athyglisvert atvik á æfingu hjá Víði Garði í gær. Kærasta markvarðarins Joaquin Ketlun hljóp þá inn á æfinguna og bað hann um að giftast sér.
Ketlun birtir myndband af þessu á Facebook og skrifar þar:

„Ég skildi ekki hvað var að gerast. Á miðri æfingu þá birtist hún og biður mig um að giftast sér. Ég er mjög ánægður og ég elska þig."

Ketlun þakkaði félaginu fyrir að hafa hjálpað unnustu sinni að skipuleggja þetta.

„Ég vil þakka liðsfélögum mínum, starfsteyminu og öllu félaginu fyrir að gefa okkur þessa ógleymanlegu stund. Ég mun aldrei gleyma þessu augnabliki."

Argentínski markvörðurinn, sem er einnig með króatískt ríkisfang, hefur spilað á Íslandi frá 2021. Fyrst lék hann með Sindri og svo hefur hann spilað með Víði frá því í fyrra.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.