Fotbolti.net
18.07.23 - 14:31
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Hallgrímur Mar framlengir við KA

Hallgrímur Mar framlengir við KA
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KA tilkynnti rétt í þessu að Hallgrímur Mar Steingrímsson hefði framlengt samning sinn við félagið út tímabilið 2025.

Gildandi samningur átti að renna út í lok tímabils en KA og leikmaðurinn hafa náð saman um tveggja ára framlengingu.
Hallgrímur er algjör lykilmaður í liði KA og skoraði hann fyrra mark liðsins gegn Connah's Quay Nomands frá Wales síðasta fimmtudag. Markið var stórglæsilegt og skoraði Hallgrímur það í sínum 300. leik fyrir KA.

Hann er leikjahæsti leikmaður í sögu KA, markahæsti leikmaður liðsins, leikjahæstur í efstu deild og sá markahæsti í efstu deild.

Hann er 32 ára framsækinn miðjumaður sem er uppalinn í Völsungi og hefur einnig leikið með Víkingi á sínum ferli. Á tímabilinu hefur hann skorað þrjú mörk og lagt upp átta í átján leikjum.

Hallgrímur eftir 300. leikinn með KA: Sjúk tilfinning

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.