18.08.09 - 11:24
Magnús Már Einarsson
Andre Bikey til Burnley (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Burnley hefur keypt kamerúnska varnarmanninn Andre Bikey frá Reading fyrir óuppgefna upphæð.
Þessi 24 ára gamli leikmaður hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Burnley.
Bikey kom til Reading frá Lokomotiv Moskvu á láni árið 2006 en var síðan keyptur á eina milljón punda.
Bikey á ekki góðar minningar frá Turf Moor heimavelli Burnley en hann fékk á sig vítaspyrnu í leik liðanna í umspili um sæti í ensku úrvalsdeildinni síðastliðið vor.
Hann fékk síðan rautt spjald í sama leik en hann brást illa við því, reif sig út treyjunni og henti henni í jörðina.
Fyrir vikið var Bikey dæmdur í fjögurra leikja bann en hann er búinn að taka það út og gæti því leikið fyrsta leik sinn með Burnley þegar að liðið tekur á móti Manchester United annað kvöld.

Heimild: BBC