Fotbolti.net
18.08.09 - 12:00
Magnús Már Einarsson

Damien Duff til Fulham (Staðfest)

Damien Duff til Fulham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Fulham hefur keypt kantmanninn Damien Duff frá Newcastle fyrir óuppgefna upphæð.
Þessi þrítugi leikmaður lék áður með Blackburn þar sem að hann lék undir stjórn Roy Hodgson, núverandi stjóra Fulham.

Eftir dvölina hjá Blackburn fór Duff til Chelsea á 17 milljónir punda árið 2003 og síðan til Newcastle á 5 milljónir punda árið 2006.

,,Ég er ánægður með að fá mann í þessum gæðaflokki í okkar hóp og hann kemur með nýja möguleika á miðjunni,\" sagði Hodgson.

,,Ég hef þekkt Damien í yfir áratug síðan að hann komst inn í aðalliðið hjá Blackburn þegar að ég var stjóri þar þannig að ég þekki hæfileika hans og hlakka til að vinna aftur með honum.\"

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.