Fotbolti.net
18.08.09 - 12:29
Magnús Már Einarsson

Claudio Pizarro til Werder Bremen (Staðfest)

Claudio Pizarro til Werder Bremen (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Werder Bremen hefur keypt Claudio Pizarro framherja Chelsea.
Pizarro lék með Werder Bremen frá 1999-2001 og var síðan í láni hjá félaginu á síðustu leiktíð.

Þá skoraði hann sautján mörk og þótti leika vel með Werder Bremen.

Þessi þrítugi leikmaður var með Chelsesa á undirbúningstímabilinu en náði ekki að sanna sig fyrir Carlo Ancelotti stjóra félagsins.

Pizarro var ekki í leikmannahópi Chelsea gegn Hull um helgina og nú er ljóst að hann mun leika aftur í Þýskalandi á komandi tímabili.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.