Fotbolti.net
18.08.09 - 13:28
Magnús Már Einarsson

Nemanja Matic til Chelsea (Staðfest)

Carlo Ancelotti stjóri Chelsea.

Carlo Ancelotti stjóri Chelsea.

Canon

Mynd: Getty Images

Chelsea hefur keypt miðjumanninn Nemanja Matic frá MFK Kosice í Slóvakíu en talið er að kaupverðið hljóði upp á 1,5 milljónir punda.
Þessi 21 árs gamli leikmaður hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Chelsea.

Sunderland og Tottenham höfðu einnig sýnt Matic áhuga en Chelsea náði að krækja í leikmanninn.

,,Ég veit mikið um Chelsea og ég hef fylgst með þeim,\" sagði Matic eftir að gengið var frá samningum í dag.

Matic fótbrotnaði í leik með U21 árs landsliði Serba á EM í sumar en hann er ennþá að jafna sig eftir þau meiðsli.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.