18.08.09 - 15:53
Magnús Már Einarsson
Watford fær Tom Cleverley á láni frá Man Utd (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Watord hefur fengið miðjumanninn Tom Cleverley á láni frá Manchester United.
Lánssamningurinn gildir fram í janúar en Cleverley gæti leikið sinn fyrsta leik með Watford gegn Nottingham Forest í kvöld.
Þessi tvítugi leikmaður lék með Leicester City á láni á síðustu leiktíð og hjálpaði liðinu að tryggja sér sigur í þriðju efstu deild á Englandi.
Cleverley er í U-20 ára landsliði Englendinga en hann skoraði mark fyrir aðallið Manchester United í æfingaleik gegn Valencia fyrr í mánuðinum.

Heimild: BBC