Liverpool er að færast nær því að klófesta Diogo Jota, portúgalska sóknarmanninn sem er á mála hjá Wolves.
Sky Sports greinir frá því að viðræður séu vel á veg komnar.
Sky Sports greinir frá því að viðræður séu vel á veg komnar.
Sky segir frá því að Jota muni kosta Liverpool um 35 milljónir punda og gætu félagaskiptin gengið í gegn á morgun.
Umboðsmaðurinn Jorge Mendes er einn þeirra sem sjá um mál Jota og er fólk á vegum Jota í viðræðum við Liverpool um kaup og kjör. Jota er sagður vilja spila í Meistaradeildinni á þessari leiktíð. Þessu greinir Fabrizio Romano frá á Twitter.
Athugasemdir