Fotbolti.net
18.10.10 - 17:11
Magnús Már Einarsson

Hull fær Mannone á láni frá Arsenal (Staðfest)

Hull fær Mannone á láni frá Arsenal (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Hull City hefur fengið markvörðinn Vito Mannone á láni frá Arsenal en samningurinn gildir þar til í janúar.
Mannone er í ítalska U21 árs landsliðinu en hann hefur verið í herbúðum Arsenal síðan 2005.

Mannone hefur þó ekki fengið mörg tækifæri hjá Arsenal en hann hefur alls leikið tólf leiki með aðalliði félagsins.

Líklegt er að Mannone fari beint inn í leikmannahóp Hull fyrir leikinn gegn Sheffield United annað kvöld.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.