Fotbolti.net
18.10.10 - 22:20
Hafliði Breiðfjörð

Tadas Jocys í Fjarðabyggð (Staðfest)

Fjarðabyggð hefur fengið liðsstyrk.

Fjarðabyggð hefur fengið liðsstyrk.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Vilhjálmur Siggeirsson

Fjarðabyggð hefur styrkt lið sitt fyrir komandi tímabil í 2. deild karla en Tadas Jocys er kominn til félagsins frá nágrannafélaginu, Leikni Fáskrúðsfirði.
Tadas er 16 ára gamall sóknarmiðjumaður og uppalinn hjá Leikni F. Hann þykir mjög efnilegur leikmaður enda verið undanfarið í úrtakshópi fyrir U-17 ára landsliðið.

Tadas skrifaði undir 2 ára samning við Fjarðabyggð og bætist í stóran hóp ungra og efnilegra leikmanna sem takast á við 2. deild næsta sumar.

Á vef félagsins kemur fram að unnið hefur verið hörðum höndum undanfarnar vikur að ganga frá samningum við leikmenn Fjarðabyggðar.

Aðeins er ljóst að einn leikmaður fer frá þeim, Srdjan Rajkovic markvörður sem fór í Þór. Haukur Ingvar Sigurbergsson mun þjálfa liðið ásamt Heimi Þorsteinssyni.

Heimild: Vefur Fjarðabyggðar

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.