Fotbolti.net
18.10.11 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Jón Stefán Jónsson þjálfar kvennalið Hauka (Staðfest)

Jón Stefán við undirskriftina í gær.

Jón Stefán við undirskriftina í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Kvennaboltinn
Jón Stefán Jónsson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Hauka sem leikur í 1. deild kvenna en þetta var tilkynnt á fréttamannafundi Hauka í gær.
Jón Stefán kemur til Hauka frá Þór þar sem hann hefur þjálfað mikið í yngri flokkum undanfarin ár með góðum árangri.

Hann var yfirþjálfari yngri flokka Þórs en hætti því starfi til að taka við Haukum. Hann hefur einnig starfað í knattspyrnuskóla KSÍ og tvisvar verið til aðstoðar í yngri landsliðum kvenna.

Hann tekur við starfinu af Salih Heimi Porca sem hefur stýrt liðinu undanfarin ár en hætti í haust og er tekinn við Hamri sem leikur í 2. deild karla.

Haukar enduðu í 2. sæti síns riðils í 1. deild kvenna í sumars og mættu svo erkiféndunum í FH í umspili um sæti í efstu deild þar sem þær biðu lægri hlut.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.