Fotbolti.net
18.10.11 - 12:30
Fótbolti.net

Slúðurpakki úr íslenska boltanum - Númer þrjú

Jónas Þór Næs er orðaður við FH.

Jónas Þór Næs er orðaður við FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Þá er komið að öðrum slúðurpakkanum úr íslenska boltanum í haust. Í slúðurpakkanum kemur fram helsti orðrómurinn sem gengur í bænum en við ítrekum að þetta er bara orðrómur, ekkert er staðfest fyrr en frétt með fyrirsögn sem hefur orðið (Staðfest) innan sviga birtist hér á Fótbolta.net.
Félög mega ræða strax við leikmenn með samþykki núverandi félags þeirra en leikmenn sem renna út á samningi á árinu eða um áramót má byrja að ræða við beint 16. október og þá þarf ekki að ræða við núverandi félag leikmannsins.

Slúðurpakkinn er einungis til að hafa gaman af og ef menn hafa ábendingar varðandi pakkann eða um slúður hafið þá samband á [email protected].

Sjá einnig:
Íslenskur slúðurpakki - Númer tvö (10.október)
Íslenskur slúðurpakki (3.október)



KR: Albert Brynar Ingason, sóknarmaður Fylkis, er á óskalista KR-inga en þeir fá harða samkeppni um leikmanninn. Bakvörðurinn Guðjón Árni Antoníusson er orðaður við Íslandsmeistarana og þá gerast þær raddir sífellt háværari að Kristinn Steindórsson fari í vesturbæinn en líklegt er að Kjartan Henry Finnbogason spili erlendis á næsta tímabili. Eitthvað er að dragast að KR nái að landa Hauki Heiðari Haukssyni.

FH: Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, vill fá hægri bakvörð. Guðjón Árni Antoníusson hjá Keflavík hefur rætt við Fimleikafélagið en Jónas Þór Næs hjá Val hefur einnig verið orðaður við FH. Albert Brynjar Ingason var staddur í Kaplakrika í gær þar sem hann ræddi við FH-inga og þá gæti markvörðurinn Róbert Örn Óskarsson verið á leið aftur til félagsins.

ÍBV: Þorsteinn Már Ragnarsson framherji Víkings frá Ólafsvík er líklega á leið til Eyja en hann hefur verið einn besti sóknarmaður 1. deildarinnar. Þá mun Eyþór Helgi Birgisson snúa aftur til Vestmannaeyja frá HK. Ásgeir Þór Ingólfsson er orðaður við ÍBV eins og fleiri lið.

Stjarnan: Ásgeir Gunnar Ásgeirsson hjá FH og Ásgeir Börkur Ásgeirsson hjá Fylki eru báðir orðaðir við Garðabæjarliðið.

Valur: Hafsteinn Briem, miðjumaður HK, mun vera búinn að ná samkomulagi við Val. Þá vill varnarmaðurinn Þórður Steinar Hreiðarsson koma til félagsins frá Breiðabliki en hann lék undir stjórn Kristjáns Guðmundssonar í Færeyjum. Sigurður Egill Lárusson fer líklega á leið til Vals frá Víkingi.

Breiðablik: Blikar hafa átt í viðræðum við Guðjón Árna Antoníusson. Þá er félagið orðað við Pape Mamadou Faye, Magnús Þórir Matthíasson hjá Keflavík og Haukamennina Ásgeir Þór Ingólfsson og Úlfar Hrafn Pálsson.

Fylkir: Árbæjarliðið vill fá Gunnar Már Guðmundsson frá Þór en Gunnar lék undir stjórn Ásmundar Arnarssonar hjá Fjölni. Árni Freyr Guðnason, leikmaður ÍR, og Elfar Árni Aðalsteinsson, leikmaður Völsungs, eru í viðræðum við Fylki. Björgólfur Takefusa, Ásgeir Þór Ingólfsson og Andri Steinn Birgisson eru einnig orðaðir við Árbæjarliðið. Fylkismenn eru ósáttir við að nokkur félög töluðu ólöglega við Albert Brynjar Ingason og hafa látið óánægju sína í ljós við viðkomandi félög.

Keflavík: Helsta keppikefli Keflvíkinga er að reyna að halda Guðmundi Steinarssyni og Guðjóni Árna Antoníussyni sem báðir eru að líta í kringum sig.

Fram: Ásgeir Gunnar Ásgeirsson gæti farið frá FH í Safamýrina og þá eru Framarar að skoða öfluga leikmenn úr neðri deildum.

Grindavík: Óskar Pétursson markvörður vill fara en önnur félög í Pepsi-deildinni hafa sýnt honum áhuga, þar hefur nafn ÍBV oftast verið nefnt. David McCreery, fyrrum leikmaður Manchester United og Newcastle, er orðaður við þjálfarastöðuna en hann hefur víst áhuga á að koma til Íslands og þjálfa. Guðjón Þórðarson er þó enn fyrsti kostur félagsins. Þá vilja Grindvíkingar fá Sveinbjörn Jónason, markakóng 1. deildarinnar, aftur frá Þrótti.

ÍA: Mark Rutgers, varnarmaður Víkings, er orðaður við Skagamenn sem vilja einnig fá Arnar Gunnlaugsson aftur heim. Jón Vilhelm Ákason mun að öllum líkindum snúa aftur í gula búninginn.

Selfoss: Sögusagnir hafa verið í gangi á Selfossi um að Tryggvi Guðmundsson gæti gengið til liðs við Selfyssinga.

Þór: Atli Sigurjónsson og Gísli Páll Helgason eru báðir að hugsa sér til hreyfings.

Víkingur R.: Colin Marshall verður líklega áfram í Víkinni en félagið er í viðræðum við varnarmanninn Reynir Leósson og rær öllum árum að því að fá Hjört Hjartarson.

Haukar: Hafnarfjarðarliðið vill fá Hjört Hjartarson ásamt því að Guðmundur Sævarsson, bakvörður úr FH, er sterklega orðaður við liðið. Guðmundur lék undir stjórn Ólafs Jóhannessonar fyrir nokkrum árum.

Fjölnir: Andri Steinn Birgisson, Gunnar Már Guðmundsson og Ívar Björnsson eru allir orðaðir við sitt fyrrum félag. Þá vilja Fjölnismenn fá reynslubolta og hafa sýnt Reyni Leóssyni, Hirti Hjartarsyni og bræðrunum Arnari og Bjarka Gunnlaugssonum áhuga. Ásmundur Arnarsson hefur lofað Fjölnismönnum að taka engan leikmann úr liðinu yfir til Fylkis.

Víkingur Ó.: Ólafsvíkingar vilja halda varnarmanninum Matarr Nesta Jobe en hann vill sjálfur spila á höfuðborgarsvæðinu næsta sumar.

BÍ/Bolungarvík: Magnús Bernhard Gíslason, sóknarmaður Gróttu, er sterklega orðaður við Skástrikið sem vill einnig fá Matthías Guðmundsson frá Val. Þá eru sögusagnir þess efnis að Guðjón Þórðarson láti af störfum orðnar mjög háværar.

ÍR: Breiðholtsliðið talaði við Arnar Gunnlaugsson um að taka að sér starf spilandi aðstoðarþjálfara og markvörðurinn Gunnar Sigurðsson hefur einnig verið nefndur. Haukur Ólafsson og Karl Brynjar Björnsson eru á förum frá ÍR en þeir hafa sagt upp samningum sínum og þá er líklegt að Heimir Snær Guðmundsson sé einnig á förum. Þá vilja lið í Pepsi-deildinni fá unga og efnilega leikmenn frá ÍR.

Leiknir R.: Stefán Jóhann Eggertsson er í viðræðum við Leiknismenn sem vilja einnig fá Tomasz Luba frá Víkingi Ólafsvík.

HK: Ólafur Jón Jónsson, leikmaður Njarðvíkur, er í viðræðum við Kópavogsliðið.

Njarðvík: Reynsluboltinn Gestur Gylfason vill klára ferilinn í Njarðvík en hann hefur verið að spila í neðri deildum í Noregi. Hann verður 43 ára í janúar.

Reynir S.: Hjörvar Hafliðason sjónvarpsstjarna er orðaður við þjálfarastöðuna hjá Reyni en talað er um að Jóhann Magni Jóhannsson verði honum þá til aðstoðar. Þá eru feðgarnir Guðni Kjartansson og Haukur Ingi einnig orðaðir við þjálfarastarfið.
Hafsteinn Briem er sterklega orðaður við Val.

Hafsteinn Briem er sterklega orðaður við Val.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Reynir Leósson er í viðræðum við Víkinga.

Reynir Leósson er í viðræðum við Víkinga.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.