Fotbolti.net
18.10.11 - 18:57
Elvar Geir Magnússon

Hafsteinn Briem semur við Val til þriggja ára (Staðfest)

Hafsteinn Briem semur við Val til þriggja ára (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Miðjumaðurinn Hafsteinn Briem er genginn í raðir Vals og hefur skrifað undir þriggja ára samning við Hlíðarendafélagið.
Frá þessu er greint á vefsíðu Morgunblaðsins.

Hafsteinn er 21 árs og hefur allan sinn feril leikið með HK en hann lék sinn fyrsta leik fyrir meistaraflokk félagsins sextán ára gamall.

Hann hefur síðustu þrjú ár leikið stórt hlutverk með liðinu í 1. deild en hann kom við sögu í einum leik í efstu deild 2008.

Eins og kunnugt er féll HK úr 1. deildinni í sumar en Hafsteinn skoraði sigurmark liðsins í lokaumferð deildarinnar gegn Gróttu. Það mark gerði það að verkum að Grótta féll en Leiknir hélt sæti sínu.

Heimild: Morgunblaðið

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.