18.11.11 - 16:32
Hafliði Breiðfjörð
Rakel Hönnudóttir í Breiðablik (Staðfest)

Rakel með Borghildi Sigurðardóttur formanni meistaraflokksráðs kvenna hjá Breiðablik. Hún mun nú klæðast græna búningnum eftir að hafa samið við Breiðablik.

Mynd: Breiðablik

Landsliðskonan Rakel Hönnudóttir er gengin til liðs við Breiðablik frá Þór/ KA og gekk frá tveggja ára samning við Kópavogsliðið rétt í þessu. Hún er annar leikmaðurinn sem félagið fær í vetur því áður kom Björk Gunnarsdóttir úr Val.
Rakel Hönnudóttir er 23 ára gamall sóknarmaður sem hefur bara leikið með Þór/KA og Þór/KA/KS hér á landi.
Hún var í skamman tíma hjá Bröndby í Danmörku frá janúar fram í apríl 2009. Í nóvember á síðasta ári hafnaði hún sænska liðinu Jitex og ekkert varð heldur af því að hún færi til Malaga á Spáni í janúar.
Hún yfirgefur nú Þór/KA liðið þar sem hún hefur spilað með meistaraflokki síðan árið 2004, allt í allt 134 leiki í deild og bikar og skorað í þeim 124 mörk.
Hlynur Svan Eiríksson þjálfari Breiðabliks sagði við Fótbolta.net að hann væri mjög ánægður með að fá Rakel til félagsins og að það væru spennandi tímar framundan hjá félaginu.
Rakel hefur átt fast sæti í íslenska landsliðshópnum undanfarin ár og hefur leikið 33 leiki með liðinu og skorað tvö mörk.