18.11.11 - 17:18
Hafliði Breiðfjörð
Katrín Ásbjörns og Þórhildur Ólafs í Þór/KA (Staðfest)

Talið frá vinstri: Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfari Þór/KA, Arna Sif Ásgrímsdóttir, Þórhildur Ólafsdóttir og Nói Björnsson formaður kvennaráðs.

Mynd: Vefur Þórs

Þór/KA fékk góðan liðsstyrk í dag þegar þær Katrín Ásbjörnsdóttir úr KR og Þórhildur Ólafsdóttir úr ÍBV gengu til liðs við félagið auk þess sem Arna Sif Ásgrímsdóttir framlengdi samning sinn við félagið til tveggja ára. Þetta kom fram á vef Þórs. Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfar Þór/KA á komandi leiktíð.
Katrín Ásbjörnsdóttir er 19 ára gömul og hefur verið lykilmaður í liði KR og hefur hún leikið 58 leiki með liðinu í efstu deild og bikar og í þeim skoraði hún 11 mörk. Þá á hún 26 landsleiki að baki með U17 og U19 landsliðum Íslands og í þeim leikjum hefur hún skorað 5 mörk.
Þórhildur Ólafsdóttir er 21 árs gömul og hefur leikið allan sinn feril með ÍBV. Hún á að baki 62 leiki með ÍBV í 1. Og efstu deild auk bikarleikja og i þeim leikjum hefur hún skorað 34 mörk. Þá á Þórhildur tvo leiki að baki með U19 ára landsliði Íslands. Þórhlldur er framliggjandi miðjumaður.
Arna Sif Ásgrímsdóttir er 19 ára og hefur undanfarin ár verið í fremstu röð íslenskra leikmanna þrátt fyrir ungan aldur. Arna Sif lék sína fyrstu leiki með meistaraflokki sumarið 2007 þá aðeins 15 ára gömul síðan þá hefur hún leikið 95 leiki með liðinu í efstu deild, bikar og meistarakeppni KSÍ auk tveggja leikja í Meistaradeild Evrópu og samtals hefur hún skorað 19 mörk. Þá á hún að baki 15 leiki með U17 og U19 og í þeim skorað eitt mark.

Heimild: Vefur Þórs