Fotbolti.net
18.12.11 - 20:25
Alexander Freyr Tamimi

Markus Babbel rekinn frá Herthu Berlin (Staðfest)

Markus Babbel rekinn frá Herthu Berlin (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Þýska úrvalsdeildarfélagið Hertha Berlin hefur rekið þjálfarann Markus Babbel í kjölfar ósættis um helgina.
Báðir aðilar höfðu sakað hvorn annan um lygar og endaði það á því að þessi fyrrum leikmaður Liverpool var rekinn. Babbel átti sex mánuði eftir af samningi sínum en hafði frestað því að framlengja hann.

Babbel tók við knattspyrnustjórn Herthu Berlínar fyrir síðasta tímabil og kom þeim upp í efstu deild strax á sínu fyrsta tímabili. Hann virtist þó hafa tekið þá ákvörðun að yfirgefa félagið þegar samningurinn rynni út, en nú þarf hann ekki að bíða svo lengi.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.