18.12.11 - 18:19
Hafliði Breiðfjörð
Gísli Páll og Sindri Snær í Breiðablik (Staðfest)

Sindri Snær er kominn í Breiðablik.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Gísli Páll Helgason og Sindri Snær Magnússon skrifuðu í dag undir þriggja ára samninga við Breiðablik.
Við sögðum frá því fyrr í dag að Gísli Páll myndi ganga í raðir félagsins í dag frá Þór á Akureyri en nú er ljóst að félagið fékk líka Sindra Snæ frá ÍR en hann hefur æft með liðinu upp á síðkastið.

Gísli Páll er tvítugur hægri bakvörður sem hefur spilað undanfarnar fimm leiktíðir með meistaraflokki Þórs. Hann hefur samtals spilað 95 leiki og skorað í þeim þrjú mörk og hefur einnig átt sæti í öllum yngri landsliðum Íslands og leikið með þeim 14 leiki.
Sindri Snær er 19 ára og hefur leikið með meistaraflokki ÍR frá árinu 2008. Hann hefur í heildina spilað 55 leiki fyrir félagið. Hann hefur leikið 9 leiki fyrir U19 og U17 ára landslið Íslands.
Hann gengur nú til liðs við lið Breiðabliks sem hann hefur æft með í vetur og er þar með orðinn leikmaður Breiðabliks eins og systir hans, Sandra Sif Magnúsdóttir sem hefur leikið með kvennaliði félagsins undanfarin ár.
Breiðablik hafði áður fengið Elfar Árna Aðalsteinsson frá Völsungi og Viggó Kristjánsson frá Gróttu. Þá hefur Stefán Þór Pálsson leikmaður ÍR æft með liðinu í vetur en ekki er ljóst hvort hann komi til félagsins.