Fotbolti.net
19.01.12 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson

Tonny Mawejje til Golden Arrows (Staðfest)

Tonny Mawejje til Golden Arrows (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Golden Arrows í Suður-Afríku hefur fengið Tony Mawejje á láni frá ÍBV. Lánssamningurin gildir fram á vor en Golden Arrows á síðan möguleika á að kaupa leikmanninn.
Mawejje, sem er 25 ára gamall hefur verið lykilmaður í liði ÍBV undanfarin þrjú ár en hann hefur skorað sex mörk í 71 deildar og bikarleik með liðinu.

Hann fór til reynslu hjá Golden Arrows í síðustu viku, en félagið hreifst af leikmanninum og ákvað í kjölfarið að fá hann á láni frá ÍBV.

Liðið leikur í efstu deild í Suður-Afríku en félagið fékk auk þess til sín tvo aðra leikmenn í gær.

Tonny er fastamaður í landsliði Úganda en þar leikur hann með fyrrum félaga sínum hjá ÍBV, Andy Mwesigwa og Abel Dhaira sem er markvörður Eyjamanna.

Heimild: Supersport

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.