Fotbolti.net
19.01.12 - 13:00
Magnús Már Einarsson

Anthony Modeste til Blackburn (Staðfest)

Anthony Modeste til Blackburn (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Blackburn Rovers hefur fengið framherjann Anthony Modeste á láni frá franska félaginu Bordeaux.

Lánssamningurinn gildir út tímabilið en í honum er engin klásúla um að Blackburn geti keypt Modeste í sumar.
Hinn 23 ára gamli Modeste hefur skorað fjögur mörk í fimmtán leikjum í frönsku deildinni í vetur.

Samtals hefur hann skorað 13 mörk í 52 leikjum með Bordeaux en Modeste mun nú reyna að hjálpa Blackburn í fallbaráttunni í ensku úrvalsdeildinni.

Modeste gæti mögulega stokkið beint inn í byrjunarliðið hjá Blackburn því aðalmarkaskorari liðsins Yakubu verður í banni í næstu þremur leikjum eftir að hafa fengið rauða spjaldið gegn Fulham um síðustu helgi.

Heimild: AP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.