19.05.10 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Þórður Birgisson í KS/Leiftur (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Vilhjálmur Siggeirsson

KS/Leiftur náði að krækja í framherjann Þórð Birgisson á láni frá HK áður en félagaskiptaglugginn lokaði um síðustu helgi.
Þórður er uppalinn hjá KS en hann lék með KS/Leiftri gegn Víði Garði í annarri deildinni um síðustu helgi.
Þórður verður að láni í að minnsta kosti nokkrar vikur en HK getur kallað hann til baka eftir 15.júní.
Sumarið 2008 var Þórður einnig í láni hjá KS/Leiftri en þá lék hann með liðinu í fyrstu deildinni.