19.05.10 - 14:02
Magnús Már Einarsson
Ben Foster til Birmingham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Birmingham hefur keypt markvörðinn Ben Foster frá Manchester United fyrir óuppgefna upphæð.
Þessi 27 ára gamli leikmaður er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við Birmingham.
Foster fær það hlutverk að fylla skarð Joe Hart sem er á leið til Manchester City að nýju eftir að hafa verið í láni hjá Birmingham á nýliðnu tímabili.
,,Við höfum fengið annan hungraðan ungan markvörð sem vill sanna sig,\" sagði Alex McLeish stjóri Birmingham.
Foster kom til Manchester United frá Stoke árið 2005 og byrjaði í markinu á síðasta tímabili áður en slæm mistök kostuðu hann sæti í liðinu.

Heimild: BBC