19.05.10 - 14:25
Magnús Már Einarsson
Luigi del Neri tekur við Juventus (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Luigi Del Neri hefur verið ráðinn þjálfari Juventus en hann hætti sem þjálfari Sampdoria á dögunum.
Þar með er ljóst að Rafael Benitez, stjóri Liverpool, mun ekki fara til Juventus eins og orðrómur hefur verið um.
Del Neri stýrði Sampdoria í fjórða sætið í Serie A á nýliðnu tímabili en liðið sigraði meðal annars Inter, AC Milan, Roma og Juventus.
Del Neri tekur við Juventus af Alberto Zaccheroni sem stýrði liðinu tímabundið í nokkra mánuði eftir að Ciro Ferrara var rekinn.
Juventus gekk ekki vel á nýliðnu tímabili en liðið endaði í sjöunda sæti og fer því í Evrópudeildina á næsta tímabili.

Heimild: AP