Fotbolti.net
19.06.10 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Luca Castellazzi til Inter (Staðfest)

Luca Castellazzi í leik með Sampdoria.

Luca Castellazzi í leik með Sampdoria.

Canon

Mynd: Getty Images

Inter hefur staðfest að Luca Castellazzi sé kominn til liðsins frítt frá Sampdoria. Hann er búinn að skrifa undir tveggja ára samning.

Castellazzi er 34 ára gamall markvörður en hann hefur staðið sig gríðarlega vel með Sampdoria síðastliðin tímabil, en hann fékk lítið að spila á nýliðnu tímabili vegna meiðsla en þegar hann kom úr meiðslunum hafði hann misst byrjunarliðssæti sitt. Sampdoria endaði í 4. sæti ítölsku deildarinnar.
,,FC Internazionale hefur lokið við samningsviðræður við Luca Castellazzi. Ítalski markvörðurinn, fæddur 1975, hefur skrifað undir samning sem mun renna út 30. júní 2012,\" stóð á vefsíðu félagsins.

,,Það er heiður fyrir mig að vera partur af Inter fjölskyldunni. Ég er að ganga til liðs við mjög sterkt lið sem hefur átt stórkostlegt ár.\"

,,Ég get ekki beðið eftir að byrja að æfa undir stjórn Rafael Benitez. Ég finn mikla hamingju,\"
sagði Castellazzi.

,,Inter er frábær hópur, frábært félag og ég er mjög stoltur að vera hérna.\"

,,Það verður mikill heiður að vinna með Julio Cesar, sem er besti markmaður í heimi eins og er. Sem mótherji hefur hann alltaf hrifið mig og ég er viss um að það mun ekki breytast þegar hann verður samherji minn.\"

Heimild: Goal

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.