Liverpool gefst ekki upp á Isak - Newcastle vill Rashford - Gyökeres neitar að ræða við Sporting
   fim 19. júní 2025 17:55
Ívan Guðjón Baldursson
Verður Quansah dýrastur í sögu Leverkusen?
Mynd: EPA
Sky Sports greinir frá því að Bayer Leverkusen sé afar nálægt því að ná samkomulagi við Liverpool um kaup á varnarmanninum efnilega Jarell Quansah.

Quansah er 22 ára gamall en sér ekki greiða leið inn í byrjunarliðið hjá Liverpool. Hann elskar uppeldisfélagið sitt en vill fá meiri spiltíma eftir að hafa aðeins komið við sögu í 25 leikjum á nýliðnu tímabili.

Liverpool er að ganga frá kaupum á Florian Wirtz eftir að hafa keypt góðvin hans og liðsfélaga Jeremie Frimpong frá Leverkusen fyrr í sumar.

Leverkusen er að selja fleiri leikmenn eftir brottför Xabi Alonso þjálfara og lítur þýska félagið á Quansah sem frábæran kost fyrir varnarlínuna.

Quansah er miðvörður að upplagi en getur einnig spilað sem hægri bakvörður.

Stærsti þröskuldurinn fyrir þessi félagaskipti er verðmiðinn á Quansah. Liverpool vill fá 40 milljónir punda fyrir leikmanninn en það væri metfé fyrir Leverkusen, sem hefur aldrei borgað meira en 30 milljónir punda fyrir leikmann.

Dýrustu kaupin í sögu Leverkusen er Kerem Demirbay, sem kostaði um 28 milljónir punda.

Quansah er með 33 landsleiki að baki fyrir yngri landslið Englands og gæti spilað sinn fyrsta A-landsleik á komandi mánuðum.
Athugasemdir
banner
banner
banner