19.07.10 - 10:34
Magnús Már Einarsson
Lasse Jörgensen í Keflavík (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Keflavík hefur samið við danska markvörðinn Lasse Jörgensen en hann mun leika með liðinu út tímabilið. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.
Lasse varði mark Keflvíkinga á síðustu leiktíð þegar Ómar Jóhannsson var frá vegna meiðsla.
Ómar hefur einnig verið að glíma við meiðsli í sumar og því hafa Keflvíkingar ákveðið að semja við Lasse.
Lasse, sem er 26 ára, lék með Silkeborg í heimalandi sínu áður en hann gekk í raðir Keflvíkinga í fyrra.

Heimild: Morgunblaðið