Fotbolti.net
19.07.10 - 13:13
Magnús Már Einarsson

Joe Cole til Liverpool (Staðfest)

Joe Cole til Liverpool (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool hefur samið við Joe Cole en hann kemur frítt til félagsins frá Chelsea.
Samningur Cole hjá Chelsea rann út á dögunum og hann hefur nú samþykkt fjögurra ára samning við Liverpool.

Þessi 28 ára gamli leikmaður mun fara í læknisskoðun í dag eða á morgun áður en formlega verður gengið frá samningum.

Cole, sem er 28 ára, kom til Chelsea frá West Ham árið 2003 en hann hefur á ferli sínum leikið tæplega sextíu landsleiki með enska landsliðinu.

Cole er þriðji leikmaðurinn sem Liverpool fær í sumar en áður höfðu Milan Jovanovic og Jonjo Shelvey komið til félagsins.

Heimild: Heimasíða Liverpool

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.