19.08.09 - 12:27
Magnús Már Einarsson
Michel Salgado til Blackburn (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Michel Salgado, fyrrum hægri bakvörður Real Madrid, hefur gert tveggja ára samning Blackburn Rovers.
Þessi 33 ára gamli leikmaður kemur frítt til Blackburn eftir að Real Madrid rifti samningi hans fyrr í sumar.
Salgado hefur verið í tíu ár í herbúðum Real Madrid en hann mun fá sérstakan leik sér til heiðurs í Madrid í næstu viku.
Salgado er spenntur fyrir því að ganga í raðir Blackburn en hann hafnaði tilboði frá Chelsea fyrir fimm árum síðan.
,,Ég átti möguleika á að ganga til liðs við Chelsea en ég var líka heppinn því að mitt félaga var Real Madrid,\" sagði Salgado.
,,Ég elska félagið, ég var þar í tíu ár og ég er stoltur af því að hafa spilað svo lengi með þeim.\"

Heimild: BBC