Fotbolti.net
19.10.10 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Colin Calderwood tekinn við Hibernian (Staðfest)

Colin Calderwood tekinn við Hibernian (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Colin Calderwood er hættur sem aðstoðarstjóri Newcasle United en hann tók í gær við Hibernian í Skotlandi.
Calderwood tekur við af John Hughes en Steve Clarke fyrrum aðstoðarstjóri Chelsea og Billy Stark þjálfari U21 árs landsliðs Skota voru einnig inni í myndinni hjá Hibernian.

,,Tækifærið að stýra úrvalsdeildarliði í heimalandi mínu var of gott til að hægt væri að hafna því,\" sagði Calderwood við heimasíðu Newcastle.

Hinn 45 ára gamli Calderwood hefur verið hjá Newcastle síðan í janúar 2009 en hann stýrði áður Northampton Town og Nottingham Forest.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.