19.10.10 - 10:35
Magnús Már Einarsson
Freddie Sears til Scunthorpe (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Scunthorpe hefur fengið framherjann Freddie Sears á láni frá West Ham en lánssamningurinn gildir í einn mánuð.
Sears, sem er tvítugur, var á síðasta tímabili bæði í láni hjá Crystal Palace og Coventry.
Sears, sem er tvítugur, var á síðasta tímabili bæði í láni hjá Crystal Palace og Coventry.
Scunthorpe hefur verið í leit að liðsstyrk en liðið er án sigurs í síðustu sex leikjum.
Forráðamenn félagsins vonast til að Sears hjálpi liðinu að snúa því gengi við en leikmaðurinn gæti spilað sinn fyrsta leik gegn Preston í kvöld.
Forráðamenn félagsins vonast til að Sears hjálpi liðinu að snúa því gengi við en leikmaðurinn gæti spilað sinn fyrsta leik gegn Preston í kvöld.
Heimild: Soccernet
