19.10.10 - 16:04
Hafliði Breiðfjörð
Halldór Kristinn Halldórsson semur við Val (Staðfest)

Halldór Kristinn og Friðjón R. Friðjónsson formaður Vals.

Mynd: Valur

Halldór Kristinn Halldórsson miðvörður og fyrirliði Leiknis er genginn til liðs við Val en þetta kom fram í tilkynningu frá félaginu í dag. Halldór er annar leikmaðurinn sem gengur í raðir Vals, áður hafði Guðjón Pétur Lýðsson komið frá Haukum.
Halldór er 22 ára, hefur leikið 135 leiki í meistaraflokki með Leikni og skorað í þeim 5 mörk.
Halldór Kristinn er efnilegur miðvörður og hefur farið til reynslu til nokkurra liða í Evrópu eins og Hearts í Skotlandi, Bröndby í Danmörku og AZ Alkmaar í Hollandi. Halldór á einnig að baki níu U19 landsleiki og einn U17 landsleik
,,Það verður spennandi að vinna með Kristjáni. Áætlanir hans sýna að Valur er stórhuga fyrir næsta sumar,\" sagði Halldór Kristinn í tilkynningu Vals í dag.
Hann hefur allan sinn feril leikið með Leikni en var á mála hjá FH veturinn 2007-2008 og sneri aftur til Leiknis fyrir tímabilið 2008.