Fotbolti.net
19.10.11 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Pétur Björnsson þjálfar kvennalið Tindastóls (Staðfest)

Úr leik hjá Tindastóli í sumar.

Úr leik hjá Tindastóli í sumar.

Canon

Mynd: Björn Ingvarsson

Kvennaboltinn
Pétur Björnsson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Tindastóls en frá þessu var greint á vef félagsins. Liðið leikur í 1. deild kvenna.
Pétur er 46 ára íþróttakennari frá Íþróttakennaraskólanum á Laugarvatni. Pétur er einnig lögreglumaður og starfar sem varðstjóri hjá lögreglunni á Sauðárkróki.

Pétur hóf þjálfaraferil sinn á Akranesi með því að þjálfa handbolta og síðan yngri flokka í knattspyrnu. Hann flutti vestur á firði árið 1995 og þjálfaði þar knattspyrnu og fleiri íþróttagreinar þar til hann flutti til Sauðárkróks 2008.

Pétur hóf yngri flokka þjálfun hjá Tindastóli árið 2010 og varð síðan aðstoðarþjálfari m.fl. kvenna árið 2011. Hann hefur nú tekið við þjálfarastöðunni af Bjarka Má Árnasyni sem lét af störfum að eigin ósk að loknu síðasta tímabili.

Heimild: Vefur Tindastóls

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.