20.01.12 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Alexander Lúðvígsson í Víking R. (Staðfest)

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Víkingur R. hefur fengið Alexander Lúðvígsson til liðs við sig frá Hamar í Hveragerði.
Alexander lék sinn fyrsta mótsleik með Víkingi í gær en hann var þá í byrjunarliðinu í 1-0 sigri á ÍR í Reykjavíkurmótinu.

Alexander er uppalinn hjá Val og Breiðabliki en hann hefur leikið með Hamarsmönnum undanfarin tvö ár.
Á þeim tíma skoraði Alexander þrjú mörk í 40 deildar og bikarleikjum með Hamarsmönnum.
Þessi 22 ára gamli leikmaður lék á vinstri kantinum hjá Víkingi í gær en hann getur einnig leikið á bakverði og á miðjunni.